Efni frá íbúafundum í apríl

Haldnir voru íbúafundir í Dalabúð í Búðardal þann 8. apríl og í Félagsheimilinu á Hvammstanga þann 9. apríl þar sem staða viðræðna var kynnt og leitað eftir sjónarmiðum íbúa. Fundirnir voru vel sóttir og þóttu heppnast vel.

Þrjár spurningar voru lagðar fyrir þátttakendur:

  1. Hvaða tækifæri felast í sameiningu?
  2. Hverjar eru áskoranirnar við sameiningu?
  3. Hvað viljum við alls ekki missa?

Þeir íbúar sem mættu á fundina voru almennt hlynntir því að skoða kosti og ókosti sameiningar fyrir íbúa.

Gert er ráð fyrir að fundir með svipuðu sniði verða haldnir í tengslum við formlegar viðræður þegar nær dregur íbúakosningum.

Hér má nálgst glærur frá íbúafundunum og niðurstöður: