Íbúakosningar um sameiningartillögur 28. nóvember – 13. desember
Íbúakosningar um sameiningar sveitarfélaga skv. 119. grein sveitarstjórnarlaga fara fram í hvoru sveitarfélagi fyrir sig á tímabilinu 28. nóvember til 13. desember 2025. Einfaldur meirihluti þeirra sem kjósa ræður niðurstöðu kosninganna í viðkomandi sveitarfélagi. Skipuð hefur verið sameiginleg kjörstjórn sem hefur umsjón með undirbúningi og framkvæmd kosninganna og kjörstjórnum sveitarfélaganna hefur verið falið að sjá um framkvæmd íbúakosninganna hvorri í sínu sveitarfélagi.
Kosningaréttur og kjörskrá
Kjörskrá er gefin út 20 dögum áður en kosning á að hefjast og miðast við lögheimilisskráningu á hádegi 22 dögum fyrir kosningar. Rétt til þátttöku í íbúakosningu eiga:
- íslenskir, danskir, finnskir, sænskir eða norskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri á lokadegi atkvæðagreiðslu og eiga skráð lögheimili í því sveitarfélagi þar sem íbúakosning fer fram 22 dögum áður en atkvæðagreiðsla hefst.
- erlendir ríkisborgarar, sem hafa átt skráð lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt fyrir lokadag atkvæðagreiðslu, og fullnægi að öðru leyti skilyrðum a-liðar.
Sveitarstjórnirnar hafa ákveðið að kosningaaldur í íbúakosningunum skuli miðast við 16 ár, sbr. 3. mgr. 133. gr. sveitarstjórnarlaga. Þeir íbúar sem hafa náð 16 ára aldri á lokadegi kosninga geta því tekið þátt.
Í aðdraganda kosninganna verður hægt að sjá hvort og hvar kjósandi geti kosið á vef þjóðskrár. https://www.skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/hvar-a-eg-ad-kjosa/
Kjörstaðir og póstkosning
Kjörstaðir verða auglýstir þegar nær dregur kosningum. Heimilt er að bjóða upp á færanlegan kjörstað og skal þá auglýst hvar kjörstaðurinn er á hverjum tíma.
Sjái íbúi sér ekki fært að mæta á kjörstað á því tímabili sem auglýst er, er hægt að óska eftir að greiða atkvæði með póstkosningu. Kjósandi skal þá hafa samband við skrifstofu þess sveitarfélags þar sem kjósandi hefur kosningarétt, gera grein fyrir sér með því að gefa upp kennitölu og óska eftir því að fá send kjörgögn til kjósanda á uppgefið heimilisfang eða netfang.
Nýti kjósandi sér rétt sinn til kosninga með póstkosningu þarf kjörseðill að berast kjörstjórn fyrir lokun kjörstaða síðasta dag kosningarinnar.
Aðstoð við kosningar
Kjósandi á rétt á að njóta aðstoðar aðstoðarmanns sem fylgir kjósanda á kjörstað eða fulltrúa kjörstjórnar. Aðstoð skal aðeins veitt ef kjósandi getur sjálfur skýrt þeim er aðstoðina veitir frá því hvernig hann vill greiða atkvæði. Aðstoðarmanni kjósanda eða fulltrúa kjörstjórnar sem aðstoðina veitir er skylt að fara að fyrirmælum kjósanda og eru þeir bundnir þagnarskyldu.